Vinnustaðavandi: Sálar og seiðkarlar
- Ólafur Kári Júlíusson

- May 16, 2025
- 3 min read
Af hverju gengur stundum illa að leysa vandamál á vinnustöðum?
Það er ekki skortur á góðum vilja, hæfileikum eða metnaði sem veldur því að vandamál á vinnustöðum verða langvarandi og flókin. Þvert á móti er flest fólk að gera sitt besta. Samt gerist það aftur og aftur að inngrip misheppnast, starfsfólk upplifir óánægju eða kulnun og stjórnendur standa ráðalausir.
Það sem ég sé oft inn á vinnustöðum er að algengasta orsök slíkra vandamála er einfaldlega fljótfær greining. Við viljum komast beint í lausnir, laga og bæta – en missum þá oft sjónar á því sem skiptir máli. Það er mannlegt, sérstaklega þegar tímapressan er mikil og miklar væntingar eru gerðar til okkar. Því miður eru engar töfralausnir til. Ef þær væru til þá myndi ég gjarnan vilja titla mig seiðkarl í staðin vinnusálfræðings!

Tökum tvö dæmi
Í fyrsta dæminu var mikið um starfsmannaveltu í þjónustuteymi þar sem stór hluti starfsfólks var ungt (Gen Z er það kallað í dag). Stjórnendur gerðu ráð fyrir að vandinn lægi í væntingum og viðhorfum kynslóðarinnar – en þegar greiningar voru gerðar kom í ljós að stærstu vandamálin voru lélegt skipulag á vöktum, lítið sjálfræði í starfi og skortur á trausti og hröðum ákvörðunum.
Ungt starfsfólk hafði einfaldlega ekki tækifæri til að vinna með fyrirsjáanleikann sem þau þurftu, sérstaklega þar sem margir voru annaðhvort í námi eða með ung börn.
Í öðru dæminu var áberandi kulnun meðal starfsfólks í líftæknifyrirtæki. Viðbrögðin voru að ráða fleiri starfsmenn og kaupa aðgang að Calm-appinu. En kulnunin hélst óbreytt. Ítarlegri greiningar leiddu í ljós að vandinn lá í óljósum boðleiðum, síbreytilegum áherslum og menningu sem umbunaði sjálfsfórn frekar en heilbrigð vinnubrögð. Appið fékk aldrei raunverulega að skila sínu því vinnuumhverfið gaf ekki rými fyrir það.
En hvað getum við þá gert?
Við erum öll mannleg – við viljum leysa mál hratt og örugglega. En þegar kemur að flóknum vinnustaðavandamálum þurfum við að taka okkur tíma, ígrunda og vinna kerfisbundið.
Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:
✅ Ekki hlaupa í aðgerðir – greindu fyrst. Hvað er raunverulega að? Hver upplifir vandann? Hvernig birtist hann í daglegu starfi?
✅ Vandinn er oft ekki fólkið – heldur kerfið, menningin og skipulagið.
✅ Við erum öll hugsandi fólk – og þess vegna lendum við í hugsanaskekkjum. Við dæmum of fljótt, höfum of mikla trú á innsæi og vanmetum aðstæður.
✅ Góð inngrip eru hönnuð með fólki – ekki bara fyrir það. Starfsfólk veit yfirleitt hvað þarf að breytast – ef við hlustum.
Tékklistar og ígrundun – frekar en innsæi og flýtileiðir
Við viljum gjarnan trúa því að innsæi okkar dugi, að við „vitum“ hvað þarf að gera. En rannsóknir sýna að í flóknum aðstæðum – eins og þeim sem við finnum á vinnustöðum – þá eru vel ígrunduð skref og skipulag líklegri til árangurs. Rétt eins og skurðlæknir treystir á tékklista, þá ætti mannauðsfólk og stjórnendur að treysta á gögn, viðtöl og rannsóknir – ekki eingöngu innsæi.
Þannig að:
Vandamál á vinnustöðum eru oft flóknari en þau virðast í fyrstu.
Fljótvirkar lausnir virka sjaldan vel til lengri tíma.
Kerfisbundin greining og samtal við starfsfólk eru lykillinn.
Ef þú vilt skoða hvernig þinn vinnustaður getur greint og leyst mál af fagmennsku og með árangur í huga, hafðu þá samband og við finnum eitthvað út úr þessu saman.
Hér að neðan má finna hlekki í áhugaverðar greinar og myndband sem fer aðeins í þessi mál :)



Comments