top of page

Fræðsla og ráðgjöf

Vinnuvís býður upp á fjölbreytt fræðsluerindi fyrir vinnustaði og leggur áherslu á að sníða efnið að hverjum vinnustað fyrir sig svo að þekkingin komist sem best til skila til starfsfólks.

Í ráðgjöf er lögð áhersla á þarfagreiningu og djúpan skilning á þörfum vinnustaðarins til að tryggja að hægt sé að framkvæma inngrip sem hafa jákvæð, mælanleg og gagnleg áhrif.

Ráðgjöf

Sveigjanleg og markviss

Ráðgjöf Vinnuvís byggir á gagnreyndum aðferðum og viðurkenndum fræðilegum grunni. Hún getur farið fram á vinnustaðnum eða í formi viðtala á stofu, allt eftir þörfum. Þar leggjum við áherslu á handleiðslu fyrir starfsfólk og stjórnendur, ráðgjöf um krefjandi vinnustaðamál og önnur úrlausnarefni sem tengjast starfi og starfsumhverfi – með það að markmiði að skapa lausnir sem eru bæði faglegar og raunhæfar.

Dæmi um ráðgjöf:

  • Handleiðsla fyrir stjórnendur sem takast á við erfið samskipti eða breytingar í starfsmannahópi

  • Stuðningur við starfsfólk sem hefur orðið fyrir einelti, áreitni eða öðrum krefjandi aðstæðum á vinnustað

  • Ráðgjöf til stjórnenda um viðbrögð við kvörtunum eða ábendingum um ágreining og áreitni

  • Aðstoð við að móta ferla og verklag sem tryggja heilbrigt starfsumhverfi

  • Ráðgjöf og úrræði til að byggja upp traust, liðsheild og jákvæða menningu eftir ágreining

Fræðsla

Eitthvað fyrir alla

Fræðsla er einföld en gagnleg aðferð til að koma á framfæri nýrri þekkingu til starfsfólks. Fræðslan byggir á fyrirlestrum, verkefnum, æfingum og samtölum, eftir því hvað vinnustaðurinn þarf.

Fræðsla sem Vinnuvís hefur boðið upp á:

  • Að sigrast á streitunni – hvernig við bregðumst við og hvaða aðferðir virka

  • Að greina og leysa vinnustaðamál - aðferðir, gildrur og gagnleg ráð

  • Krefjandi samskipti á vinnustöðum – verkfæri til að takast á við ágreining og auka skilning

  • Hamingja í lífi og starfi – hvað stuðlar að vellíðan og árangri

  • Einelti, áreitni og ofbeldi – fræðsla fyrir starfsfólk og stjórnendur um viðbrögð og forvarnir

  • Stjórnendafræðsla – leiðtogafærni, samskipti, hvatning og uppbygging jákvæðrar menningar

Þá hefur Vinnuvís haldið utan um vinnustofur fyrir fjölbreytt mál, til að mynda:

  • Stefnumótun í stjórnun

  • Mótun menningar á vinnustað

  • Mótttaka nýliða

  • Ráðningarferli

  • Lausn EKKO mála á vinnustað

bottom of page