top of page
Search

Að sigrast á streitunni

  • Writer: Ólafur Kári Júlíusson
    Ólafur Kári Júlíusson
  • Apr 9, 2025
  • 2 min read

Stundum er lífið erfitt í vinnunni. Stundum er mikið að gera, stundum er rólegt. Og það er bara allt í lagi. Þetta “stundum”. Þetta verður hins vegar talsvert verra og flóknara þegar það er ALLTAF mikið að gera eða ALLT OF lítið að gera.


Streita fær vanalega slæmt umtal og þarf að líða fyrir það. Streita getur hins vegar reynst góður bakhjarl. Í réttu magni hjálpar streitan okkur að undirbúa okkur fyrir erfiða tíma, átök og krefjandi verkefni.


Stundum þarf gefa streitupúkanum einn á'ann
Stundum þarf gefa streitupúkanum einn á'ann

Svo gerist það, það verður of mikið af einhverju í of langan tíma. Allt í einu er þig farið að verkja í líkamann og skilur ekkert í því. Þú sefur verr, ert uppstökkari og minnið er ekki upp á sitt besta. Oft fer líka “fávitunum” að fjölga í kringum mann þegar svona liggur við.


Við getum sem betur fer gert margt til að vinna með streituna.




Ef við komum okkur að kjarna málsins þá þurfum við að vinna með:


  • Hugsanir, hegðun og tilfinningar okkar. Það er bölvað vesen, en þetta helst því miður í hendur. Við þurfum að vinna markvisst með það hvernig við hugsum um hlutina í kringum okkur, okkur sjálf og rannsaka viðbrögðin okkar við heiminum.

  • Starfssmíði (Job crafting) er góð leið fyrir okkur til að hafa áhrif á verkefnin okkar og starfið. Með starfssmíði fáum við meiri völd yfir okkar hlutverki, aukið sjálfstæði og getum betur ákveðið hvernig við vinnum hlutina. Auðvelt að segja, en getur reynst erfiðara í framkvæmd.

  • Gjörhygli (Mindfulness) hefur hjálpað mörgum. Að taka sér pásu, koma sér inn í núið og veita umheiminum, hugsunum og tilfinningum athygli. Að leyfa þeim að vera til staðar, að skilja, læra og sjá hvernig við bregðumst við. Þetta kemur oft ró á hugsanir okkar og dregur úr streitueinkennum.

  • Stuðningur er lykilatriði. Að finna fyrir stuðning í vinnu og heima fyrir. Það þarf enginn að tækla streituna einn síns liðs. Nýtum okkur stuðning og bjargræði í kringum okkur.


Því miður gleymist allt of oft megin vandamálið. Streituvaldurinn sjálfur. Það sem er að valda streitunni. Best er að lágmarka eða reyna útrýma streituvaldinum. Við þurfum að vita hvert vandamálið er því við getum ekki alltaf sett alla ábyrgðina á einstaklinginn að “díla” við streituna.


Vinnuvís hjálpar þér að takast á við streituna og greina vinnuumhverfið þitt svo hægt sé að tryggja sem flestum öruggan, góðan og áhyggjulausan vinnustað.


 
 
 

Comments


bottom of page