Erfið mál eins og einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað leysast ekki af sjálfu sér. Með faglegri úttekt, skýrslu og ráðgjöf byggðri á gagnreyndum aðferðum fær vinnustaðurinn þinn hlutlausa greiningu, skýra mynd af stöðunni og raunhæfar lausnir sem auka líkur á farsælli lausn.
EKKO mál
Einelti, kynferðisleg- og kyndbundin áreitni og ofbeldi
Á vinnustöðum getur því miður myndast hegðun sem hefur alvarleg áhrif á starfsfólk, velferð og árangur. Þegar grunur vaknar um einelti, áreitni eða ofbeldi þarf að bregðast við á faglegan, hlutlausan og gagnreyndan hátt.
Vinnuvís byggir vinnu sína á alþjóðlega viðurkenndum rannsóknum og nálgunum sem hafa mótað evrópskan og norrænan ramma fyrir greiningu og meðferð slíkra mála.
Þjónustan felur m.a. í sér:
-
Úttektir og rannsókn: Kerfisbundin greining á aðstæðum með viðtölum, gögnum og viðurkenndum aðferðum
-
Skýrslur og niðurstöður: Skýrar, faglegar skýrslur sem veita stjórnendum raunhæfa mynd af stöðunni og hagnýt ráð
-
Ráðgjöf og aðgerðir: Tillögur að lausnum og stuðningi við framkvæmd, hvort sem það er menningarbreyting, ferlabreytingar eða einstaklingsmiðuð úrræði
-
Handleiðsla stjórnenda: Fagleg handleiðsla fyrir stjórnendur og lykilstarfsmenn sem þurfa að takast á við erfið mál eða endurbyggja traust
Allar úttektir eru unnar af tveimur sérfræðingum Vinnuvís, vinnusálfræðing og klínískum sálfræðing, sem bæði eru vottuð af Vinnueftirlitinu.