top of page
Search

Sálfræðilegur samningur

  • Writer: Ólafur Kári Júlíusson
    Ólafur Kári Júlíusson
  • Mar 19, 2025
  • 2 min read

Updated: Mar 20, 2025

Þú veist það sem er ekki sagt... eða hvað?


Hefurðu einhvern tímann upplifað að væntingar þínar í vinnunni hafi ekki ræst? Það var búið að segja þér að hér væru tækifæri til vaxtar, er það ekki?


Og þú ert búin(n) að leggja þig mikið fram en færð samt eiginlega ekkert fyrir það?


Þessi tilfinning sem þú finnur, þessar væntingar og þarfir - þetta mætti kalla klausur í sálfræðilega samningnum okkar.


Hvað er sálfræðilegi samningurinn?


Sálfræðilegi samningurinn er óyrtur og óformlegur samningur milli vinnuveitanda og starfsmanns um væntingar, skuldbindingar og traust. Hann mótast af samskiptum, menningu og upplifun á vinnustaðnum. Það verða til einhverjar væntingar hjá okkur, einhver “þörf” eða sambærilegt sem er, því miður, ekki endilega beint rætt.


Þegar samningurinn er sterkur og báðir aðilar upplifa virðingu og sanngirni, styrkir það traust, eykur starfsánægju og bætir frammistöðu. Svona í sinni einföldustu mynd.


En ef hann brestur? Þá koma upp vonbrigði, vantraust og jafnvel ákveður fólk að yfirgefa starfið.


En samningurinn á ekki bara við á vinnustaðnum. Hann verður til í kringum vináttu og sambönd líka.


Hvað getur rift sálfræðilega samningnum?


🔹 Væntingar sem eru gefnar í skyn en ekki uppfylltar

“Hér eru mjög mikil tækifæri til vaxtar á sjóndeildarhringnum. Þú hefur staðið þig virkilega vel síðan við réðum þig inn, framtíðin er spennandi.”

🔹Skortur á heiðarleika og gagnsæi

“Já já, ekkert mál. Hafðu ekki áhyggjur af smáatriðunum, það er búið að ganga frá öllu saman og þetta lítur bara vel út.”

🔹 Ójafnvægi í gefnu og fengnu – starfsmenn leggja meira á sig en þeir fá til baka (vogarskálar lífsins).

“Það hefur aldeilis verið mikið að gera hjá þér upp á síðkastið og ég veit þú hefur unnið mjög mikið frameftir frá fjölskyldu og vinum. Sem þakklætisvott vil ég endilega gefa þér gjafabréf í Huppu ísbúð*.”


og svo sagði hún: "Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur Anna, þú verður vel verðlaunuð....með pizzaveislu!"
og svo sagði hún: "Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur Anna, þú verður vel verðlaunuð....með pizzaveislu!"


Hvernig byggjum við upp sterkan sálfræðilegan samning?


Það er mikilvægt að stilla af væntingar frá degi eitt, alveg frá því að starfið er auglýst og þar til viðkomandi lýkur störfum. Sálfræðilegi samningurinn er margslunginn og misjafn milli fólks.


Það sem er mikilvægt í þessu að er að sálfræðilegi samningurinn hvílir ekki bara á herðum stjórnenda! Það er mikilvægt að starfsfólk sé líka opið og heiðarlegt um sínar væntingar og þarfir. Þetta er “samningur” og hann gildi á báða bóga.


Það er ágætt að hafa þessi þrjú einföldu atriði í huga. Þótt þau virðist vera ofureinföld, þá er staðreyndin sú hjá okkur mannfólkinu að það getur verið erfitt að uppfylla þau.


✔️ Skýr og heiðarleg samskipti frá upphafi

✔️ Stjórnendur standa við orð sín og skapa traust

✔️ Starfsfólk upplifir sig metið og virt

 

Svo er að sjálfsögðu gott að taka upp sálfræðilega samninginn öðru hverju og endurmeta hann.


Taktu samtalið við starfsfólkið þitt (nú, eða yfirmanninn þinn) og gerðu væntingar og þarfir skýrar.


*Höfundur hefur alls ekki neitt á móti ís - þvert á móti hefur hann íhugað að þiggja ís sem gjaldmiðil.

 
 
 

Comments


bottom of page