top of page
Search

Starfsánægja og frammistaða: Svartigaldur eða kaleikur?

  • Writer: Ólafur Kári Júlíusson
    Ólafur Kári Júlíusson
  • Mar 10, 2025
  • 2 min read

Starfsánægja og frammistaða. Tommi og Jenni. Sulta og ristað brauð. Tveir lykilþættir sem virðast alltaf fylgjast að! En er það alltaf svo? Er starfsánægja lykillinn að betri frammistöðu, eða getur fólk skilað góðu verki þótt það sé ekki alsælt í vinnunni?


Flestir myndu segja að starfsánægja og frammistaða séu sterklega tengd. Þegar við erum ánægð í vinnunni okkar, þá erum við líklegri til að leggja meira af mörkum, vera skapandi og hjálpa samstarfsfólki. Þetta skapar jákvætt andrúmsloft þar sem allir njóta góðs af.


En er það svo einfalt? Eru ánægðir starfsmenn alltaf bestu starfsmennirnir. Rannsóknir síðustu 20 ára segja stundum já, stundum kannski, stundum sjaldan, mögulega oftast og kannski ekki og ef til vill mögulega. Þetta er líklega ein flóknasta og forvitnilegasta spurningin í vinnusálfræðinni – ekki að ástæðulausu sem að lausnin á henni væri kölluð Heilagi kaleikurinn.


Gerir gott kaffi góðan starfsmann?
Gerir gott kaffi góðan starfsmann?


Stundum er það þannig að almenn lífsánægja skiptir meira máli en að vera hamingjusamur á vinnustaðnum sjálfum. Ef við erum almennt ánægð í lífinu, þá hefur það oft jákvæð áhrif á vinnuframmistöðu okkar.


Annað sem vert er að skoða er hvort það gæti jafnvel verið öfugt: Er það kannski svo að afkastamikið starfsfólk sé hamingjusamt starfsfólk? Þegar við náum árangri í vinnunni okkar, þegar verkefni ganga upp og við finnum fyrir tilgangi, þá eykst oft vellíðan okkar. Sem sagt, það að vera í umhverfi þar sem við getum náð árangri, höfum allt sem þarf til þess og sjáum árangur, þá verðum við ánægðari en ekki öfugt.


Rannsóknir sýna þó að langvarandi óánægja getur haft slæm áhrif á heilsu og framleiðni. Við vitum líka að fyrirtæki með ánægt starfsfólk eru líklegri til að ná betri árangri. Þannig að jafnvel þótt starfsánægja sé ekki eini þátturinn sem hefur áhrif á frammistöðu, þá er hún stór hluti af heildarmyndinni.


Hvað sem öllu líður með orsakatengsl og vinnusálfræðilegan svartagaldur, þá viljum við flest líklega finna tilgang og gleði í vinnunni okkar. Það er ekki bara gott fyrir okkur sjálf heldur líka fyrir vinnustaðinn.


Kannski er hinn eini sanni kaleikur vinnusálfræðinnar einfaldlega að skapa umhverfi þar sem starfsfólk er hvatt til að blómstra bæði persónulega og faglega.


Hvað finnst þér?

 
 
 

Comments


bottom of page