top of page
Search

Er stjórnun á þínum vinnustað eins og hola í höggi? Gagnreynd stjórnun á mannamáli.

  • Writer: Ólafur Kári Júlíusson
    Ólafur Kári Júlíusson
  • Feb 27, 2025
  • 2 min read

Ímyndaðu þér að þú sért að spila golf í fyrsta sinn. Þú kemur þér fyrir, skellir kúlunni á tí-ið, tekur kylfuna, veðjar á tilfinninguna og lætur vaða! Þú slærð boltann og vonar það besta. Það fer þó ekki betur en svo að boltinn þýtur af stað, sveigir til vinstri og endar út í vatni. Þú kastar frá þér kylfunni, sparkar í golftöskuna og sverð þess eið að spila aldrei aftur golf!


Hver kúla sem er slegin vitlaust er eins og verkefni í vinnunni sem misheppnast
Hver kúla sem er slegin vitlaust er eins og verkefni í vinnunni sem misheppnast

En hvað myndi gerast ef þú gæfir þér aðeins meiri tíma í höggið? Segjum svo að þú ákveðir að huga að vind, hallanum á vellinum, velur kylfu fyrir tilefnið og metur höggkraftinn sem þú þarft að beita. Hvað skyldi gerast? Jú, viti menn, kúlan flýgur í rétta átt og lendir umtalsvert nær holunni en áður.


Það er margt í golfi sem er líkt með stjórnun. Góður golfari anar ekki áfram og tekur högg hægri vinstri án þess að meta aðstæður, skoða hvað hefur virkað áður og nýta sér þær upplýsingar sem eru í boði. Að spila eingöngu eftir tilfinningunni er ekki alltaf vænlegt til árangurs. Það sama gerir góður stjórnandi og þá getur verið gott að nýta sér eitthvað sem kallað er gagnreynd stjórnun.


Það er auðveldara en þú heldur að tileinka sér hana og hægt er að ganga út frá sex skrefum til að vinna að henni.


Sex skref í gagnreyndri stjórnun – Betri ákvarðanir í rekstri


Hvað er gagnreynd stjórnun?

Gagnreynd stjórnun (evidence-based management) snýst um að taka ákvarðanir byggðar á bestu fáanlegu gögnum, frekar en eingöngu á tilfinningu eða hefðum. Þetta eykur líkur á árangri í rekstri, mannauðsstjórnun og stefnumótun.


Sex skref í gagnreyndri stjórnun


Skilgreina vandamálið

Hvað er raunverulega að gerast? Er þetta byggt á gögnum eða tilfinningu? Skýr skilgreining er lykilatriði.


Safna gögnum

Hvaða upplýsingar eru til staðar? Notum markaðsgögn, starfsmannakannanir og rannsóknir til að fá skýra mynd.


Meta gæði gagnanna

Eru gögnin áreiðanleg og hlutlaus? Hafa þau verið rétt túlkuð? Mikilvægt er að tryggja að ákvarðanir byggist á vönduðum upplýsingum.


Túlka niðurstöður

Hvað segja gögnin okkur? Hvernig tengjast þau vandamálinu? Hér þarf að greina orsakir og afleiðingar.


Taka upplýsta ákvörðun

Hvaða lausn er líklegust til að skila árangri? Hvernig tryggjum við sanngjarna og siðferðilega rétta nálgun?


Fylgjast með og aðlaga

Virkar lausnin? Þurfum við að breyta nálguninni? Árangursmat er nauðsynlegt til að læra og bæta framtíðarákvarðanir.


Gagnreynd stjórnun er lykillinn að betri rekstri og stefnumótun. Notar þú þessa aðferð í þínu fyrirtæki?

 
 
 

Comments


bottom of page