top of page
Search

Er landris á þínum vinnustað?

  • Writer: Ólafur Kári Júlíusson
    Ólafur Kári Júlíusson
  • Mar 4, 2025
  • 2 min read

Við Íslendingar erum orðin ýmsu vön þegar kemur að eldgosum. Við sitjum og bíðum eftir næsta gosi, undirbúum okkur vel, tryggjum innviðina, tökum höndum saman til að styðja við nágranna okkar og vitum nákvæmlega hvað þarf að forðast.


En hvað ef það væri eldgos á vinnustaðnum þínum. Myndir þú taka eftir því?


Einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi (EKKO) á vinnustöðum er um margt eins og eldgos. Þegar þessi mál taka sig upp og fá að grassera, þá byrjar starfsfólk að bíða eftir næstu bombu. En það eru ekki alltaf sprengingarnar sem eru hættulegastar. Rétt eins og í eldgosi eru það áhrifin eftir gosið – öskufallið – sem geta kæft heilan vinnustað.


Askan sem fylgir einelti og áreitni er ekki alltaf sýnileg. Hún leggst yfir vinnustaðinn í formi pirrings, neikvæðni, óöryggis og vanlíðunar. Menningin kafnar og starfsandinn hverfur undir mörgum lögum af neikvæðni.


Það kraumar oft undir niðri á vinnustöðum
Það kraumar oft undir niðri á vinnustöðum


Við getum ekki stöðvað eldgos – en við getum undirbúið okkur

Rétt eins og við getum ekki komið í veg fyrir eldgos, þá er líklegt að við náum aldrei að útrýma einelti, áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum. En við getum dregið úr líkunum og lágmarkað áhrifin.


Einelti á sér aldrei stað í tómarúmi. Það gerist ekki „af því bara“. Vinnuumhverfið sjálft getur skapað jarðveg fyrir slæm samskipti og erfið mál. Hér eru nokkrir lykilþættir sem hafa áhrif:

  • Samskiptafærni og leiðtogahæfni stjórnenda

  • Geta starfsfólks til að sinna verkefnum sínum

  • Sú hegðun sem umbunuð er á vinnustaðnum

  • Skipulag og strúktúr fyrirtækisins

  • Vinnuálag og kröfur


Afleiðingar EKKO-mála eru raunverulegar


Fyrir einstaklinginn: Afleiðingarnar geta verið alvarlegar, svo sem kvíði, þunglyndi, minnkað sjálfsálit og aukið óöryggi. Líkamleg einkenni eru algeng, eins og svefntruflanir, magavandamál og höfuðverkir.


Fyrir vinnustaðinn: EKKO-mál geta leitt til aukinnar starfsmannaveltu, lakari starfsanda og minni framleiðni – og þetta án þess að nefna þann fjárhagslega kostnað sem getur fylgt.


Við höfum þegar náð langt – en betur má ef duga skal!

Þökk sé góðri löggjöf og ábyrgðarfullum vinnuveitendum hefur íslenskur vinnumarkaður tekið stór skref í átt að betra vinnuumhverfi. En það er alltaf hægt að gera betur.


Regluleg fræðsla til starfsfólks og þjálfun stjórnenda er eitt öflugasta vopnið í baráttunni gegn EKKO-málum. Hún styrkir innviði vinnustaða, bætir samskipti og eykur starfsánægju.


Hjá Vinnuvís er boðið upp á fræðslu og ráðgjöf um EKKO-mál, handleiðslu og þjálfun fyrir stjórnendur. Hafðu samband og skoðum saman hvernig við getum byggt upp sterkan, heilbrigðan og öruggan vinnustað.

 
 
 

Comments


bottom of page